Ziplínur geta verið mjög skemmtilegar og eru að festa rótum hér á Íslandi sem frábær afþreying. Mega Zipline er sú stærsta hér á landi og opnar í lok árs 2022. Línan er staðsett í Hveragerði, við Kambana. Sú lína er eins kílómetra löng og hægt er að velja hvort þú sitjir venjulega eða hangir í línuni með andlitið fram. Þeir sem það kjósa geta farið á allt að 120km hraða en þeir sem vilja frekar fara hægar yfir og njóta ferðarinnar ættu að setjast með hefðbundnum hætti.
Í Perlunni er einnig Ziplína en hún er smærri í sniðum. Þar liggur línan frá útsýnispallinum á Perlunni og niður öskjuhlíðina framhjá bílastæðunum. Það er hinsvegar bara opið á sumrin og mælum við því með að athuga með opnunartíma áður en lagt er af stað.
Á Vík eru einnig Ziplínur en þar spilar landslagið stærri rullu. Það eru 4 línur í túrnum og labbað er á milli í ótrúlegu landslagi. Má því segja að þar sé skemmtileg gönguferð með fjórum zip línum á leiðinni.
Á Akureyri eru svo einnig í boði að svífa. Þar er 1-2 tíma upplifun í boði þar sem gengið er á milli 5 sviflína þar sem er m.a. svifið yfir Glerá.