Píla í Reykjavík

Þú þarft alls ekki að vera góður í pílu til þess að hafa gaman að Pílukasti. Nýjasta tækni hefur nefnilega gert pílukast að nýjasta æðinu í skemmtanalífinu í Reykjavík. Því núna er hægt að spila pílu án þess að þurfa að reikna saman stigin og þekkja eina einustu reglu. Þetta er nefnilega allt gert fyrir þig á stórum skjá fyrir ofan spjaldið.

Það eru tveir stórir staðir sem bjóða upp á Pílu. Það eru Bullseye í Austurbæjarbíói og Skor á Hafnartorgi. Síðan er einnig pop-up útgáfa af Skor inni á 2Guys við Hlemm. Þannig að pílan er aldrei langt undan.

 

 

Smelltu hér til að sjá alla staði á skrá hjá okkur.

Search