Minigolf er frábær skemmtun hvort sem þú ert að leita að fjölskylduskemmtun eða bjórhitting með vinnufélögum eða vinum. Það má segja að Minigarðurinn séu fyrstur á íslandi til að bjóða upp á minigolf í þeirri mynd sem það er vinsælast í dag. En þar eru tveir 9 holu minigolfvellir því er tilvalið að taka níu holur, fá sér hressingu og taka svo seinni níu. En þar er mikið úrval af bæði mat og drykk.
Það er einnig í boði að fara í minigolf hjá Skemmtigarðinum í Grafarvogi. Sá völlur er 18 holur en eins og allir alvöru golfvellir í heiminum þá er hann utandyra. Því er best að hringja á undan sér ef veðrið er ekki upp á sitt besta.