Lasertag er skemmtilegur skotleikur fyrir allan aldur. Þú klæðir þig í vesti, færð afhenta byssu og þú getur hlaupið farið af stað.
Það eru þrír Lasertag staðir á höfuðborgarsvæðinu. Við Salaveg Í Kópavogi er stór innivöllur þar sem allt að 12 manns geta spilað saman í einu. Einnig eru herbergi fyrir hópa og afmæli.
Á skemmtisvæðinu í Smáralind eru svo tveir vellir. Blacklight völlur sem er svipaður vellinum í Kópavogi og rúmar 20 leikmenn. Svo er einnig opinn völlur sem kallast Junkyard og rúmar 16 manns.
Í Skemmtigarðinum Grafarvogi er svo boðið upp á Lasertag í Villta vestrinu. Útivöllur sem er einnig notaður í paintball.
Það er einnig í boði að fá lánaðar byssur og setja upp sinn eigin völl. En Smárabíó er með pakka sem henta bæði börnum og fullorðnum. Hægt er að setja upp völl í Battle Royal stíl eins og margir þekkja úr Fortnite og Warzone en svo er einnig einfaldari útgáfa sem eru létta byssur og hægt að setja upp hvar sem er.