Það er algjörlega óþarfi að kunna að syngja til þess að hafa gaman í Karaoke. Karaoke er frábært skemmtun fyrir hópa en nú eru alltaf fleiri og fleiri Karaoke herbergi að bjóðast fyrir fólk sem vill syngja meðal vina en ekki endilega fyrir opnum bar.
Á Skor Pílubar er eitt Karaoke herbergi og hægt að gera gott kvöld með því að byrja í pílu og taka svo klukkutíma í einkaherberginu þeirra. Á Irishman Pub er einnig karaoke herbergi og lengi vel var það eina einkaherbergið sem var í boði en nú er úrvalið að aukast. Á skemmtisvæðinu í Smáralind er svo hægt að leigja herbergi og hentar það mjög vel ef þú ætlar að gera eitthvað fleira hjá þeim. Á Gamla B5 eða Bankastræti club eins og hann heitir núna er svo búið að útbúa Karaoke í kjallaranum en þar er hægt að koma um 40 manns fyrir og hentar því vel fyrir stærri hópa.
Fyrir þá sem vilja syngja heima hjá sér eða í einkasamkvæmum þá mælum við með að leigja græjur hjá Rentaparty. Þar eru kerfi í mismunandi stærðum og auðvelt að setja upp. Þannig að það er ekkert mál að setja upp Karaoke kerfi hvar sem er.