Skopp
Um er að ræða stærsta innandyra trampólín- og afþreyingargarð á Íslandi. Skopp sem hét einu sinni Rush Iceland er með afþreyingu fyrir alla aldurshópa, allt frá sérstökum krakkatímum þar sem yngstu krakkarnir fá að njóta sín alveg sér yfir í að bjóða ömmu og afa velkomin að hoppa undir handleiðslu kennara.
Skopp leggur sérstaka áherslu á að taka á móti allskonar hópum, hvort sem það eru afmælishópar, fyrirtækjahópar eða vinahópar. Hjá okkur eru allir velkomnir að koma að skemmta sér.