Reykjavík Escape

Þú hefur 60 mín til að sleppa

Fyrirtækið Reykjavik Escape býður upp á  “Flóttaleiki” (e. real life escape games) þar sem hópur tekst á við það verkefni að komast út úr sérhönnuðu herbergi sem er fullt af vísbendingum, gátum og þrautum.

Hópurinn hefur aðeins 60 mínútur til að finna og ráða í vísbendingar og leysa mismunandi erfiðar þrautir sem standa í vegi fyrir útgöngu. Þetta kann að hljóma ofureinfalt, en raunin er svo sannarlega önnur þegar á hólminn er komið,- og aðeins um þriðjungur þátttakenda kemst út innan tilsetts tíma.

Flóttaleikir eru einstaklega spennandi afþreying sem hentar vel fyrir vinahópa, fjölskyldur, vinnufélaga og skólafélaga. Leikirnir eru krefjandi og reyna á útsjónarsemi, samvinnu, athyglis og skipulagshæfileika.

Hægt er að velja úr sex leikjum sem hafa, hver um sig, sérstakt þema, markmið, þrautir og vísbendingar. Við tökum á móti hópum af öllum stærðum en lágmarksþátttaka í herbergi er 2 og mest getum við tekið á móti 50 manns í einu.

Rate and write a review

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *